Deildarstjóri í pípulagningadeild

Launafl ehf. óskar eftir að ráða deildarstjóra með meistara- eða sveinspróf í pípulögnum til að stýra pípulagningadeild fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptafærni, skipulagshæfileika og faglega þekkingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á skipulagi og stjórnun deildarinnar
  • Gera verkáætlanir að ósk kaupanda
  • Tilboðsgerð og kostnaðaráætlanir
  • Framfylgni gæðastaðla og hönnunargagna
  • Frumkvæði að öflun nýrra verkefna
  • Ábyrgð á starfsmannamálum deildar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meistara- eða sveinspróf í pípulögnum
  • Góð tölvufærni, reynsla af DK hugbúnaði er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Hvetjum alla áhugasama að sækja um starfið óháð kyni.

Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2023. Umsókn, ferilskrá og kynningarbréf sendist til [email protected]

Nánari upplýsingar veitir Magnús Helgason framkvæmdastjóri í síma 840 7211 og [email protected] eða Ragnheiður I. Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892 7484 og [email protected]

Secret Link