DEILDARSTJÓRI FJÁRMÁLASVIÐS – AÐALBÓKARI
Fjarðabyggð leitar að deildarstjóra fjármálasviðs (aðalbókara) til starfa. Um er að ræða tækifæri til að taka þátt í fjármála- og reikningshaldstjórnun í frábæru sveitarfélagi sem ætlar að takast á við miklar áskoranir á næstu árum.
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu og það fjölmennasta af sveitarfélögum Austurlands með rúmlega 5.000 íbúa. Í sveitarfélaginu er hátt þjónustustig, framúrskarandi skólar ásamt öflugu menningar-, afþreyingar-, og íþróttastarfi. Náttúran er stórbrotin bæði til að njóta og til útivista.
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin viðfangsefni starfsins er að leiðir reikningshaldsvinnslu sveitarfélagsins og stofnana. Stjórna vinnslu fjármálasviðs á sviði tengjast reikningshaldi, meðferð fjármuna og úrvinnslu fjárhagslegra upplýsinga. Einnig að bera ábyrgð á uppgjörum og gerð ársreikninga og taka þátt í umbótaverkefnum í tengslum við rekstur Fjarðabyggðar og gerðar fjárhagsáætlana.
Menntun og reynsla
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi auk sérþekkingar og faglegrar reynslu af fjárhagsbókhaldi og reikningsskilum
- Þekking á lögum og reglugerðum er gilda um reikningshald sveitarfélaga
- Þekking og reynsla af reikningsskilum sveitarfélaga og alþjóðlegum reikningsskilastöðlum
- Þekking og reynsla af áætlunargerð, úrvinnslu og framsetningu tölulegra upplýsinga
- Þekking og reynsla af Dynamics 365 BC eða sambærilegu kerfi
- Mikil Excel kunnátta og góð almenn tölvuþekking s.s. á Word og Outlook
Hæfnisþættir
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Mikil nákvæmni og vandvirkni í störfum
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í teymi
- Geta og áhugi til að taka þátt í og stjórna breytingum
- Metnað til að ná árangri
- Færni í að geta leiðbeint og veitt ráðgjöf til samstarfsmanna og annarra stjórnenda er varða málefni sem tengjast starfslýsingu þessari
Starfslýsing deildarstjóri fjármálasviðs – aðalbókari.pdf
Allar frekari upplýsingar veitir Snorri Styrkársson fjármálastjóri Fjarðabyggðar, í síma 470-9032 eða á netfanginu [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2022.