Deildarstjóri á Austursvæði
Vegagerðin auglýsir eftir verkfræðingi eða tæknifræðingi til að sinna starfi deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði.
Um er að ræða fullt star fog starfstöðin er á Reyðarfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfið er fjölbreytt og krefjandi, meðal verkefna er yfirumsjón með nýframkvæmdum og öðrum framkvæmdum eins og viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum vega, framkvæmd umferðaröryggisaðgerða og gerð viðhaldsáætlunar fyrir vegi með bundnu slitlagi. Einnig yfirumsjón með efnisvinnslu og efniskaupum á svæðinu og viðhaldi brúa og varnargarða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verkfræðingur eða tæknifræðingur eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af ámóta störfum er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóttur vinnustaður.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2023 og hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Vegagerðarinnar: Laus störf hjá Vegagerðinni | Laus störf | Vegagerðin (vegagerdin.is)