Deildarstjóri
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla auglýsir lausa til umsóknar stöðu deildarstjóra.
Seyðisfjarðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og listaskóli staðsettur á þremur nálægum starfsstöðvum í miðbæ Seyðisfjarðarkaupstaðar. Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli með um 30 nemendur. Unnið er með uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar í öllum deildum Seyðisfjarðarskóla. Einnkunarorð skólans eru: Í hverju barni býr fjársjóður.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
- Reynsla af vinnu á leikskóla er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar um leikskólann www.seydisfjardarskoli.sfk.is/is/leikskoladeild
Umsóknarfrestur er til 12. apríl nk.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri í síma 470 2320 eða á netfanginu [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laus störf“ eða á ráðningarvef Alfreðs: Deildarstjóri | Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla (alfred.is)
Umsækjendum er bent á ða kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heima´siðu svetiarfélagsins www.mulathing.is