Dagforeldri á Reyðarfirði
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar að einstaklingi, 20 ára eða eldri,
sem hefur áhuga á að sinna daggæslu barna í heimahúsi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfað er eftir reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
Allar upplýsingar gefur Bergey Stefánsdóttir í síma 470-9000
eða á netfanginu [email protected].