Byggingarfulltrúi
Umhverfis- og skipulagssvið Fjarðabyggðar auglýsir laus til umsóknar starf byggingarfulltrúa.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í örtvaxandi bæjarfélagi. Leitað er að öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Starfshlutfall er 100% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skyldur byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum, byggingarreglugerð og reglum og samþykktum Fjarðabyggðar.
- Skráning og umhald gagna sem varðar byggingarmál.
- Almenn þjónusta á sviði byggingarmála
- Útgáfa byggingarleyfa og eftirfylgni vegna þeirra, þ.m.t. úttektir og byggingareftirlit
- Eftirlit með að lögum og reglugerðum mannvikjramála sé framfylgt
- Yfirlestur aðal- og séruppdrátta í samræmi við skoðunarlista HMS og könnun á því hvort þeir samræmis gildandi lögum og reglum.
- Þátttaka í skráningu í fasteignamatsgrunn Þjóðskrár Íslands.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði byggingarmála
- Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála
- Rík þjónustulund og lipurð í annlegum samskiptum
- Frumkvæði og nákvæm vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu í teikniforritum
- Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur
Launakjör eru skv. kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Fjarðabyggðar. Fólk af öllum knjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Valur Sveinsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í síma 470 9000 eða á netfanginu [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2022
Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar www.starf.fjardabyggd.is ásamt ferilsskrá og kynningarbréfi.