Byggingarfulltrúi Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð auglýsir laus til umsóknar starf byggingarfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í ört vaxandi bæjarfélagi. Eitað er að öflugum einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði. Starfshlutfall er 100% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skyldur byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum, byggingarreglugerð, reglum og samþykktum Fjarðabyggðar
- Skráning og umhald gagna sem varðar byggingarmál
- Almenn þjónusta á sviði byggingarmála
- Útgáfa byggingarleyfa og eftirfylgni vegna þeirra, þ.m.t. úttektir og byggingareftirlit
- Eftirlit með að lögum og reglugerðum mannvirkjamála sé framfylgt
- Yfirlestur aðal- og séruppdrátta í samræmi við skoðunarlista HMS og könnun á því hvort þeir samræmist gildandi lögum og reglum
- Þátttaka í skráningu í fasteignamatsgrunn Þjóðskrár Íslands
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði byggingarmála
- Löggilding sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
- Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála er æskileg
- Góð almenn tölvukunnátta, ásamt kunnáttu í teikniforritum er nauðsynleg
- Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og nákvæm vinnubrögð
Launakjör eru skv. Kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Fjarðabyggðar. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Jón Björn Hákonarson, bæjkarstjóri í síma 470 9000 eða á netfanginu [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2023. Umsóknir berist í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar www.starf.fjardabyggd.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.