Byggingafulltrúi hjá Múlaþingi
Byggingafulltrúi á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings
Leitað er að metnaðarfullum aðila í 100% framtíðarstarf en byggingarfullt´rui hefur það markmið að annast allt sem við kemur byggingarmálum skv. Mannvirkjalögum og byggingarreglugerð.
Viðkomandi fer með byggingareftirlit og hefur yfirumsjón með byggingarmálum, með það markmið að auka skilvirkni á sviði byggingarmála hjá sveitarfélaginu.
Næsti yfir maður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri Múlaþings.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf er varða byggingarmál ásamt móttöku og afgreiðslu á byggingarleyfisumsóknum
- Framkvmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt starfestingu eignaskiptayfirlýsinga
- Undirbúa mál sem lögð eru fyrir umhverfis- og framkvæmdaráð sveitarfélagsins
- Byggingarfulltrúi starfar með öðrum starfsmönnum á sviði umhverfis- og framkvæmdamála
- Uppbygging og eftirfylgni gæðakerfis byggingarfulltrúa
- Hefur samskipti við íbúa, stofnanir og aðra hagsmunaaðila sem til hans leita
- Önnur verkefni sem viðkomanda er falið af framkvæmda- og umhverfismálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25 gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010
- Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála
- Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
- Mikil samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
- Góð íslenskukunnátta, þekking á almennum tölvuforritum og almenn leikni í upplýsingatækni
- Þekking á sérhæfðum tölvuforritum s.s. One system og Byggingu tölvukerfi HMS
- Góð þjónustulund og öguð vinnubrögð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvmda- og umhverfismálastjóri [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mlathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2022 og hægt er að sækja um starfið á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulahting.is undir „störf í boði“