Bréfberi óskast á Egilsstöðum

Pósturinn leitar að kraftmiklum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstakling í útburð.
Starfið býður upp á hressandi útiveru og við leitum eftir einstaklingi í 50% starf. Vinnutíminn er frá klukkan 09:00 alla virka morgna.

Umsóknarfrestur er opinn. Tekið er á móti umsóknum í gegnum auglýst starf á umsóknarvef Póstsins á www.postur.is

Nánari upplýsingar veitir Árni Kristinsson í síma 580 1402 eða í netfanginu [email protected]