Bókavörður

Bókasafnið á Seyðisfirði óskar að ráða bókavörð í 30% framtíðarstarf frá og með 3. janúar nk.

Helstu verkefni starfsmanns eru að annast afgreiðslu, móttaka og frágangur safnkosts, leiðbeina og veita safngestum aðstoð.

Helstu verkefni og ábyrgð
Annast upplýsingagjöf og afgreiðslu.
Móttaka og frágangur safnkosts.
Leiðbeina og veita safngestum aðstoð.
Almenn þrif og annað sem kemur til.
Umsjón og gæsla gesta á bókasafninu.
Aðstoð við skólabörn, á tíma skólasafns.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð málakunnátta s.s. íslenska, enska, þriðja tungumál.
Reynsla af notkun gagnasafns Landskerfis bókasafna er kostur.
Nákvæmni, samviskusemi og góð samskiptafærni er nauðsyn
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Hreint sakavottorð.