Bókavörður
Bókasafnið á Seyðisfirði óskar að ráða bókavörð í 30% framtíðarstarf frá og með 1. mars nk.
Helstu verkefni starfsmanns eru að annast afgreiðslu, móttaka og frágangur safnkosts, leiðbeina og veita safngestum aðstoð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Sonia Stefánsson forstöðumaður í síma 470-2339 eða á netfangið [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.