Blikksmiður
Launafl óskar eftir að ráða blikksmið í fullt starf í blikksmiðju fyrirtækisins á Reyðarfirði.
Launafl er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð með fjölbreytta starfsemi í flestum greinum sem lúta að iðnaði. Í fyrirtækinu er góður starfsandi og öflugt starfsmannafélag.
Góð laun eru í boði og tækifæri til starfsþróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn blikksmíðastörf
- Samskipti við viðskiptavini
- Tölvuvinnsla og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf eða meistararéttindi í blikksmíði er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af vinnu í faginu
- Almenn tölvukunnátta
- Ökuréttindi
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Hvetjum alla áhugasama að sækja um starfið, óháð kyni.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður I. Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892 7484 og [email protected]
Launafl ehf – www.launafl.is – sími 414 9400
Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Blikksmiður | Launafl ehf | Fullt starf Reyðarfjörður | Alfreð (alfred.is)