Austurland-Tæknistarf á ferðinni

Okkar frábæra tækniteymi á Austurlandi vantar liðsauka!

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði. Lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð, jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Ef þú…

  • hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða almenna tækniþekkingu
  • sýnir frumkvæði í starfi og metnað til að takast á við krefjandi verkefni
  • býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
  • ert með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er það kostur

… þá gætum við verið að leita af þér

Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum, myndavélum og eftirlitsbúnaði.

Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Umsóknarfrestur er til og með 9. desember nk. Nánari upplýsingar veitir Sveinn Gunnar Guðmundsson, deildarstjóri, í síma 580-7000.

Secret Link