
Austurland: læknar á sérnámsgrunni á heilsugæslu
Auglýst eru störf lækna í sérnámsgrunni á Íslandi. Um er að ræða starfsnám, sbr. 8. gr. reglugerðar um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi, nr. 467/2015, með síðari breytingum.
Upphaf ráðningar miðast við 6. júní 2022 og hefst starf á klínískum deildum 13. júní eða skv. dagsetningum sem tilteknar eru í fylgiskjali með umsókn um sérnámsgrunn. Markmiðið er að veita hnitmiðaða þjálfun og leiðsögn, samkvæmt marklýsingu á viðurkenndri heilbrigðisstofnun, þannig að læknir í sérnámsgrunni öðlist reynslu og færni til að geta starfað fagmannlega sem öruggur læknir. Starfsnámið fer fram undir ábyrgð framkvæmdastjóra lækninga á viðkomandi stofnun.
Sérnámsgrunnur er samtals 12 mánaða klínískt starf á viðurkenndum heilbrigðisstofnunum. Þar af skal læknir í sérnámsgrunni starfa a.m.k. 4 mánuði á lyflækningadeild, 2 mánuði á skurðlækningadeild og/ eða bráðadeild og 4 mánuði á heilsugæslustöð. Tveir mánuðir teljast sem tímabil utan skyldumánaða og geta læknar í sérnámsgrunni komið með óskir vegna þess.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn störf lækna í sérnámsgrunni og vaktir eftir því sem við á
- Læknar í sérnámsgrunni starfa á ábyrgð yfirlæknis og undir leiðsögn sérfræðilækna
Hæfniskröfur
- Próf í læknisfræði frá viðurkenndum háskóla
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
- Gott vald á íslenskri tungu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Sérstök mats- og hæfisnefnd metur hvaða stofnanir og svið/ deildir geta tekið á móti læknum í sérnámsgrunni. Nefnd um niðurröðun á sérnámsgrunnsár gerir tillögu að blokkarskipulagi en ráðningavald er í höndum hverrar stofnunar fyrir sig.
Varðandi umsóknir um sérnámsgrunn á Íslandi:
Umsækjendur sendi rafræna umsókn með fylgiskjölum a-c, sem talin eru upp hér fyrir neðan.
Fylgiskjöl
a) Ferilskrá með upplýsingum um menntun, starfsreynslu, vísindastörf og annað sem umsækjandi telur að skipti máli.
b) Staðfest afrit af einkunnum.
Óskað er eftir bæði BSc- og kandídatseinkunnum ef boðið er upp á slíkt, eins og t.d. í Háskóla Íslands.
c) Staðfesting á læknaprófi eða áætluðum námslokum.
Fyrir nema í HÍ þá fást frumrit/ afrit af BSc- og kandídatseinkunnum hjá þjónustuborðinu, Háskólatorgi. Óskið sérstaklega eftir að staðfesting á áætluðum námslokum komi þar fram.
d) Fylgiskjal með umsókn um sérnámsgrunn á Íslandi 2022-2023, sækja skjalið hér og vista. Í skjalinu komi m.a. fram óskir um námsstofnun, námsblokkir, heilsugæsluhluta og tímabil utan skyldumánaða. Fylgiskjalið sendist sem viðhengi í tölvupósti á netföngin sigruni@landspitali.is og gerdur.aagot.arnadottir@heilsugaeslan.is. Í subject-línu standi fullt nafn umsækjanda – fylgiskjal.
e) Skjöl a-c, sem talin eru upp hér að ofan og skulu fylgja með rafrænu umsókninni, skulu auk þess sendast á netfangið sigruni@landspitali.is. Þau sendist sem viðhengi í EINU skjali. Skjölin skulu vera í réttri röð, skönnuð inn eða sett inn í eitt word eða PDF skjal. Í subject-línu standi fullt nafn umsækjanda – umsóknargögn. Engar athugasemdir eða fyrirspurnir sendist með þessum pósti, heldur skal senda þær sérstaklega ef þarf.
f) Umsagnir frá a.m.k. tveimur umsagnaraðilum sem þekkja vel til nema í starfi (eða námi).
Sendist beint í tölvupósti á netfangið sigruni@landspitali.is
Staðlaða spurningalista er að finna á eftirfarandi slóðum:
Á íslensku: http://www.landspitali.is/umsagnirsgl
Á ensku: http://www.landspitali.is/umsagnirsgl/enska
Á dönsku: http://www.landspitali.is/umsagnirsgl/danska
Athugið: Aðeins er hægt að skipta sjúkrahúshluta sérnámsgrunns á milli tveggja stofnana.
Nánari upplýsingar veita:
Sigrún Ingimarsdóttir (LSH) – sigruni@landspitali.is – 543 1475
Gerður Aagot Árnadóttir (Hg) – gerdur.aagot.arnadottir@heilsugaeslan.is – 513 5500
Hugrún Hjörleifsdóttir (SAK) – hugrun@sak.is – 463 0344
Þórir Bergmundsson (HVE) – thorir.bergmundsson@hve.is – 432 1000
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.09.2021
Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Ingimarsdóttir – sigruni@landspitali.is – 543 1475