Austurbrú óskar eftir starfsmanni – Egilsstaðir

Austurbrú auglýsir eftir starfsmanni í 100% starf við starfsstöðina á Egilsstöðum. Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun auk góðra samskiptahæfileika.

Spennandi tækifæri fyrir áhugasama um þróun þjónustu við fyrirtæki og íbúa á Austurlandi.

Helstu verkefni :
• Þróun, skipulag og umsjón með námskeiðum, t.d. íslenska fyrir útlendinga og fullorðinsfræðsla fatlaðra.
• Framkvæmd námskeiða fyrir fyrirtæki og stofnanir; skipulagðar fræðsluáætlanir og stök námskeið.
• Umsýsla fjarprófa, s.s. frá háskólum, prófa til viðurkenninga, íslensks ríkisborgararéttar og inntökuprófa háskólanna.
• Þátttaka í ýmsum öðrum verkefnum Austurbrúar, s.s. umsjón viðburða, skipulag og umsýsla á starfsstöð.
Hæfni og menntun: Háskólamenntun sem nýtist í starfi, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, góð samskiptahæfni og frumkvæði. Þekking og reynsla af fullorðinsfræðslu er kostur.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fræðagarðs.
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2019.

Áhugasamir sendi inn kynningarbréf ásamt ferilskrá á netfangið [email protected].
Frekari upplýsingar veitir Anna Alexandersdóttir
í síma 470 3803 eða í ofangreindu netfangi.

Secret Link