Austurbrú óskar eftir liðsmanni – Djúpivogur
Austurbrú auglýsir eftir starfsmanni í 50% starf með starfsstöð á Djúpavogi. Starfið er
tímabundið til eins árs með möguleika á framtíðarstarfi. Umsækjendur þurfa að búa yfir
frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun auk góðra samskiptahæfileika. Spennandi
tækifæri fyrir áhugasama um þróun þjónustu við íbúa og fyrirtæki á Austurlandi.
Helstu verkefni:
· Verkefnastjórnun á menningartengdum verkefnum t.d. matarmenningu
· Skipulagning viðburða og námskeiða
·Ýmis ráðgjöf
· Skrif á umsóknum í sjóði sem og skýrslum og samantektum í tengslum við verkefni Austurbrúar
· Þátttaka í öðrum verkefnum Austurbrúar
· Umsýsla á starfsstöð og ýmis tilfallandi verkefni
Hæfni og menntun:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi auk jákvæðni, þjónustulundar og hæfni í mannlegum
samskiptum. Starfið krefst metnaðar, skipulagðra vinnubragða auk færni í ritun og framsetningu
efnis. Mikilvægt er að verkefnastjóri geti bæði unnið sjálfstætt sem og hluti af teymi. Sérþekking og
reynsla á sviði menningar og atvinnuþróunar er kostur.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fræðagarðs.
Umsóknarfrestur er til og með 10. janúar 2019
– Hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um.
Áhugasamir sendi inn kynningarbréf ásamt ferilskrá á netfangið [email protected].
Frekari upplýsingar veitir Anna Alexandersdóttir í síma 470 3803
eða í ofangreindu netfangi.