Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum verk- eða tæknifræðingi
Áreiðanleikasérfræðingur
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum verk- eða tæknifræðingi í starf áreiðanleikasérfræðings í áreiðanleikateymi. Áreiðanleikasérfræðingur vinnur með starfsmönnum í framleiðslu og viðhaldi að að því að auka áreiðanleika búnaðar og ber ábyrgð á skilgreiningu varahluta og gerð viðhaldsáætlana.
Ábyrgð og verkefni
• Greina mikilvægi búnaðar og þróa mælikvarða
• Tryggja að upplýsingar um búnað séu réttar
• Leiða rótargreiningar bilana og vandamála
• Reikna út kostnað og ávinning
• Stýra og fylgja eftir áreiðanleikaverkefnum
• Gera viðhaldsáætlanir og verklýsingar fyrir viðhaldsverk
• Greina viðhaldsgögn og vinna að umbótum á viðhaldi
• Halda utan um varahlutalager
Menntun og hæfni
• Menntun í verkfræði eða tæknifræði
• Þriggja ára starfsreynsla æskileg
• Vilji til að læra og þróast í starfi
• Jákvæðni og hæfni til að vinna í teymi
• Geta til að skipuleggja og leiða verkefni
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið veitir Gísli Gylfason í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 470 7700.
Hægt er að sækja um starf áreiðanleikasérfræðings á www.alcoa.is.
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 6. mars.