
Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki í framleiðsluteymi álversins
Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki í framleiðsluteymi álversins á
Reyðarfirði. Teymisfélagar skipta með sér hlutverkum og sjá um
daglega framleiðslu Fjarðaáls á þrískiptum átta tíma vöktum.
Hvers vegna að vinna með okkur?
Við erum með vaktakerfi sem gefur góðar tekjur og góð frí.
Akstur til og frá vinnu, mötuneyti, heilsugæsla, velferðarþjónusta o.fl.
Við stöndum vörð um jafnrétti og gerðum með okkur sáttmála um góða
vinnustaðarmenningu.
Við trúum því að samhent teymi ólíkra einstaklinga skili bestum árangri.
Við gerum strangar kröfur til okkar í umhverfis-, heilbrigðis- og öryggismálum.
Tækifæri til starfsþróunar með þjálfun, fræðslu og fjölbreyttri starfsreynslu.
Við búum í nálægð við náttúruna í fjölskylduvænu samfélagi á Austurlandi.
Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur í álverinu á Reyðarfirði þá hvetjum við þig til að kynna þér málið nánar.
Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls
í gegnum netfangið starf@alcoa.com eða í síma 470 7700.
Hægt er að sækja um framleiðslustörf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is.
Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, tala íslensku, vera með gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Umsóknir eru trúnaðarmál og er þeim öllum svarað.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin.
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember.