Afgreiðslustjóri á Egilsstöðum

Eimskip Flytjandi leitar að þjónustuliprum og drífandi einstaklingi í starf afgreiðslustjóra á Egilsstöðum.
Um fullt starf er að ræða og er reglubundinn vinnutími frá 08:00-16:00 alla virka daga. Æskilegt er að
viðkomandi sé reiðubúinn að vinna yfirvinnu þegar þörf er á.

Helstu verkefni eru almennur rekstur, starfsmannamál, vöruafgreiðsla, vörudreifing, lestun/losun bíla,
þjónusta við viðskiptavini og tilboðsgerð. Afgreiðslustjóri er hluti af stjórnendateymi Eimskips á
Austurlandi, en þar starfar öflugur hópur fólks í fjölbreyttum störfum við að þjónusta viðskiptavini
í innanlandsflutningum sem og inn- og útflutningi á svæðinu.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Œ Starfsreynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi
Œ Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Œ Lyftarararéttindi (J) er kostur
Œ Góð íslensku- og ensku kunnátta
Œ Almenn tölvukunnátta
Œ Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
Œ Frumkvæði, stundvísi og almenn hreysti

Nánari upplýsingar um starfið veitir Davíð Þór Sigurðarson, svæðisstjóri Eimskips á Austurlandi,
[email protected]. Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is.
Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember.

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip

Secret Link