Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Fjarðabyggðar
Tónlistarskóli Fjarðabyggðar auglýsir eftir tveimur aðstoðarskólastjórum við Tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Um er að ræða tvö stöðugildi með u.þ.b. 50% stjórnunarhlutfall hvort. Ert þú dugmikill einstaklingur með reynslu af stjórnun og kennslu í tónlistarskóla? Hefur þú brennandi áhuga á því að vinna með börnum? Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna í tónlistarskóla Fjarðabyggðar? Þá erum við að leita að þér!
Tónlistarskóli Fjarðabyggðar er nýr sameinaður tónlistarskóli sem byggir á grunni þriggja frábærra tónlistarskóla í Fjarðabyggð. Yfir 300 nemendur eru í sameinuðum tónlistarskóla og eru sex starfsstöðvar frá Breiðdalsvík til Norðfjarðar.
Fjarðabyggð er öflugt, fjölkjarna sveitarfélag sem leggur mikla áherslu á velferð og málefni allra íbúa. Í hverjum kjarna Fjarðabyggðar er starfandi tónlistarskóli með mikið samstarf og nána samvinnu við grunn- og leikskóla á hverjum stað.
- Aðstoðar við stefnumörkun skólans og gerð skólanámskrár.
- Fylgist með skipulagi náms og kennslu og hefur forystu um þróun og umbætur á starfi skólans.
- Aðstoðar við að þróaðar séu aðferðir til innra mats tónlistarskóla með það að markmiði að bæta árangur skólastarfsins.
- Stuðlar að samstarf heimilis og tónlistarskóla.
- Hefur umsjón með upplýsingaflæði innan tónlistarskólans.
- Heldur utan um nemendaskrá ásamt skólastjóra.
- Hefur umsjón með nemendatónleikum og annast kennslu í samræmi við stjórnunarhlutfall.
- Leyfisbréf til kennslu í tónlistarskóla.
- Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg.
- Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg.
- Góð málakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
- Þekking á rekstri, stjórnun og stefnumótun.
- Þekking á undirbúningi og stjórnun funda.Þekking á helstu upplýsingakerfum sem notuð eru í skólum Fjarðabyggðar.
- Afbragðs samskiptahæfileikar og vilji til að vinna með nemendum, forráðamönnum og öðrum kennurum
- Vinnutímastytting
- Íþrótta- og tómstundarstyrkur