Aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar

Seyðisfjarðarskóli auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðstoðarskólastjóra yfir leikskóladeild skólans. Um tímabundið afleysingarstarf er að ræða, amk til áramóta, og þarf viðkomandi að hefja störf sem fyrst.

Næsti yfirmaður er skólastjóri Seyðísfjarðarskóla.

Seyðisfjarðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og listaskóli staðsettur á þremur nálægum starfsstöðvum í miðbæ Seyðisfjarðarkaupstaðar.

Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli með um 30 nemendur og stöðugildi um 10. Unnið er með uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar í öllum deildum Seyðisfjarðarskóla. Einkunnarorð skólans eru: Í hverju barni býr fjársjóður.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins
  • Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram
  • Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans
  • Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans
  • Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af stjórnendastarfi í leikskóla er æskileg
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um leikskólann, www.seydisfjardarskoli.sfk.is/is/leikskoladeild

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Þeir sem ráðnir er util starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé uppplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Hrund Óladóttir, skólastjóri í síma 470 2320 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 13. September 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar | Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla | Fullt starf Seyðisfjörður | Alfreð (alfred.is)

Secret Link