Aðstoðarmatráður í skólamötuneyti
Mötuneyti Seyðisfjarðarskóla óskar eftir aðstoðarmatráði frá og með 20. Ágúst næstkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfa í mötuneytinu við matargerð og þrif
- Vinna sjálfstætt eftir fyrirmælum matráðs við bakstur og matargerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla í mötuneyti æskileg
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla af matreiðslu grænmetisrétta æskileg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Þórunn Hrund Óladóttir í síma 866 8302 eða í tölvupósti á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá félagsþjónustu, skólum og frístund þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2022 og sótt er um starfið í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „störf í boði“ eða á ráðningarvef Alfreðs: Aðstoðarmatráður í skólamötuneyti | Seyðisfjarðarskóli | Hlutastarf Seyðisfjörður | Alfreð (alfred.is)