Aðstoðarmaður í aðhlynningu – Egilsstaðir

Aðstoðarmaður í aðhlynningu – Egilsstaðir – Hjúkrunarheimilið Dyngja – Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmann í aðhlynningu á Hjúkrunarheimilinu Dyngju. Starfshlutfall er 80 – 90% eða skv. samkomulagi. Staðan er afleysingarstaða frá 15. janúar til júní 2021 eða skv. nánara samkomulagi. Möguleiki á aframhaldandi starfshlutfalli.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunarheimili.

Hæfnikröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 90%

Umsóknarfrestur er til og með 29.12.2020

Nánari upplýsingar veitir

Arney Eir Einarsdóttir – [email protected] – 470-3040 & 865-1054

Smelltu hér til að sækja um starfið

Secret Link