Aðstoðarleikskólastjóri í Bjarkatúni

Bjarkatún auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðstoðarleikskólastjóra frá og með 10. júní 2022.

Leikskólinn Bjarkatún er 2 deilda leikskóli með 37 börn staðsettur á Djúpavogi sem þekkt er fyrir fallegt umhverfi og útivistarsvæði. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Cittaslow, Grænfáa og Uppeldi til ábyrgðar. Samvinna, traust og virðing eru lykilorð okkar í leikskólanum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagninu uppeldisstarfisns og ef hann starfar jafnframt sem deildarstjóri fer hann þá eftir starfslýsingu hans.
  • Sér um tæknimál og heimasíðu leikskólans

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf semkennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um leikskólann, www.bjarkatun.is

Umsóknarfrestur er til 10. júní nk.

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga ivð viðkomandi stéttarfélag. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri, í síma 470 8720 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknurm skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Tekið er við umsóknum í starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir flipanum „laust störf“ eða á starfasíðu Múlaþings hjá www.alfred.is

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is