Aðalvarðstjóri – Eskifjörður
Aðalvarðstjóri – Lögreglustjórinn á Austurlandi – Eskifjörður.
Auglýst er laus til umsóknar staða aðalvarðstjóra við almenna deild embættis lögreglustjórans á Austurlandi. Aðalvarðstjóri verður með starfsstöð á Eskifirði.
Ábyrgð og helstu verkefni.
• Ábyrgð á löggæslu í hluta umdæmis í samræmi við skipurit embættisins
• Dagleg stjórn almennrar deild embættisins á Eskifirði og þeirra eininga sem undir þá einingu falla.
• Eftirlit með að reglum og fyrirmælum sé framfylgt og að fjárhagslegur rekstur almennrar deildar sé innan fjárheimilda.
• Uppbygging mannauðs og liðsheildar ásamt ábyrgð á mannauðsmálum þeirra eininga sem undir starfsstöðina falla.
• Önnur verkefni skv. nánari ákvörðun yfirlögregluþjóns.
• Sjá einnig verksvið og ábyrgð aðalvarðstjóra í 7. gr. reglugerðar nr. 1051/2006.
Menntunar og hæfnikröfur.
• Hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum, sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.
• Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið stjórnunarnámi frá Lögregluskóla ríkisins, Endurmenntun HÍ eða sambærilegu stjórnunarnámi.
• Hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár eftir að hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar.
• Önnur menntun og reynsla, sem nýtist í starfi er kostur.
• Góð færni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
• Frumkvæði, þjónustulund, jákvæðni og leiðtogahæfni eru mikilvægir eiginleikar.
• Skipulagshæfileikar, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum.
• Reynsla, þekking og áhugi á hlutverki og störfum lögreglu er mikilvæg.
• Gott er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af rannsóknum
• Þekking á umdæmi Lögreglunnar á Austurlandi er æskileg.
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi, sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert. Samkvæmt 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglustjóra heimilt að staðreyna hvort viðkomandi umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. nefndrar greinar, með öflun upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2020. Upphafsdagur ráðningar er 1. nóvember 2020.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið [email protected]
Með umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, hæfni til að sinna starfinu miðað við þær hæfniskröfur sem settar eru fram í auglýsingu og framtíðarsýn.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað, þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir.
Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn, s. 444 0635, netfang: [email protected]
Lögreglustjórinn á Austurlandi