Flotmeðferð Vök baths & Flothettu

20. July, 2020

Flothetta og VÖK Baths bjóða ykkur að stíga inn í töfraheim upplifunar, náttúru og þyngdarleysis í fallegum vatnaviðburði mánudaginn 20. júlí kl. 22:00.

Flotið er undir handleiðslu hönnuðar Flothettu, Unnar Valdísar Kristjánsdóttur. Boðið verður upp á djúpslakandi flot með mjúkri meðhöndlun í einstökum fljótandi náttúrulaugum Vök Baths.

Gefandi samvera í vatninu er dásamleg upplifun og það að fljóta um í þyngdarleysinu gerir heilsubætandi áhrif flotsins margþætt. Hvíld og verkjalosun, bættur svefn og meiri ró er meðal þess sem þakklátir þátttakendur í samfloti hafa nefnt sem ástæðu þess að þeir koma aftur og aftur til að fljóta. Óhætt er að segja að framlag flothettunnar sé afar dýrmætt innlegg inn í baðmenningu og lýðheilsu þjóðarinnar en Flothetta hefur verið leiðandi í innleiðingu flotslökunar á Íslandi og reyndar öllum heiminum, því hönnunin Flothetta og Samflot eru al-íslenskar nýjungar í heilsu, hannaðar af Unni Valdísi Kristjánsdóttur, hönnuði Flothettu og áhugamanneskju um vatnavellíðan.

Verð:
6.500

Innifalið:
-Aðgangur að VÖK Baths
-Flothetta og fótaflot
-Vatnsmeðhöndlun
-Nærandi drykkur

Hægt er að skrá sig með að senda tölvupóst á [email protected]

ATH. Takmarkað pláss.