BRAS MENNINGARHÁTÍÐ
1. September, 2020 - 30. September, 2020
BRAS er menningarhátíð þar sem börnum er gefið tækifæri til að skapa og upplifa listir í víðasta samhengi. Hún var haldin í fyrsta skipti í september 2018 og sem fyrr segir hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn í haust.
Einkunnarorð hátíðarinnar eru Þora! Vera! Gera! enda er leiðarljós hátíðarinnar að hvetja börn á Austurlandi til að þora að vera þau sjálf og framkvæma á eigin forsendum. Markmiðið er að búa til vettvang þar sem öll börn á Austurlandi geta unnið saman á jafningjagrundvelli óháð móðurmáli, tungumálakunnáttu og búsetu. Unnið er þvert á þjóðerni, byggðakjarna og aldur.
Önnur markmið með BRAS eru meðal annars þessi:
-
Að börn kynnist fjölbreyttum aðferðum listanna við skapandi vinnu.
-
Að opna augu barna og ungmenna á Austurlandi fyrir mikilvægi samveru, samkenndar og samstöðu.
-
Að gefa börnum tækifæri til að kynnast á nýjan hátt og skilja hvert annað út frá nýjum forsendum.
-
Að auka virðingu og umburðarlyndi meðal barna og ungmenna.
-
Að börn meti að verðleikum fjársjóðinn sem felst í aðgengi að ólíkum menningarheimum.
-
Að nota listsköpunina til að byggja brýr á milli þjóðerna, aldurshópa og byggðakjarna.
- Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á BRAS.is