Ég um mig frá mér til þín
Árið 2022 var þema BRAS sjálfsmynd og lögðu margir nýir samstarfsaðilar lóð sín á vogarskálarnar til að gera hátíðina að einstakri upplifun fyrir ungmenni og forráðamenn á Austurlandi. Eins og áður var áhersla lögð á listar- og menningarviðburði fyrir öll börn og ungmenni í góðu samstarfi við skólastofnanir, menningarmiðstöðvar og sveitarfélög á Austurlandi, auk þess sem austfirskir listamenn, List fyrir alla, Menningarmót og fleiri lögðu hátíðinni lið. Sjálfsmynd unga fólksins var rauður þráður í viðburðunum og voru allir íbúar á Austurlandi hvattir til að fylgjast vel með þeim viðburðum sem í boði voru.
Yfirskrift hátíðarinnar í ár er ég um mig frá mér til þín.
Samstarf við myndlistarfólk
Í ár var ákveðið að hefja samstarf við myndlistarfólk og eða hönnuði sem annað hvort eru búsettir á Austurlandi eða tengjast svæðinu í gegn um verkefni sín til að koma að hönnun kynningarefnis hátíðarinnar. Í ár tóku Austin James Thomasson og Dæja Arndís-Yr Hansdóttir verkefnið að sér en undanfarin ár hafa þau búið til skiptis á Seyðisfirði og í Bandaríkjunum. Við erum mjög ánægð með samstarfið, eiginlega bara svo ánægð að við ákváðum að nota allar sex tillögurnar sem þau sendu okkur.
Dæja Arndís-Yr Hansdóttir og Austin James Thomasson.