BRAS menningarhátíð barna og ungmenna verður nú haldin í sjöunda sinn og ber nafnið „Uppspretta“.

Í ár ætlum við að hvetja börn og ungmenni til að horfa inn á við og finna hvernig þau geta virkjað
sköpunarkraftinn sinn, fundið sjálfið sitt og skapað á þeim forsendum. Finna hvaðan þau koma og fyrir
hvað þau standa. Í samstarfi við fjölbreyttan hóp listafólks verður haldin menningarveisla um allt
Austurland þar sem nýir farvegir fyrir listir og menningu verða virkjaðir

Nú sem áður er BRAS unnið í frábæru samstarfi við menningarmiðstöðvarnar þrjár á Austurlandi, sveitarfélög, skóla, stofnanir, austfirskt listafólk og List fyrir alla. Við hlökkum til að vera með ykkur í haust þar sem gleðin, hið óvænta og hversdagslega verða í fyrirrúmi.

BRAS er samstarfs- og samvinnuverkefni skóla og sveitarfélaga á Austurlandi auk Skólaskrifstofunnar og List fyrir Alla. Verkefnisstjórn er á vegum Austurbrúar í mjög góðu og nánu samstarfi við sveitarfélög, menningarstofnanir og skólaskrifstofu Austurlands. frá upphafi hefur samstarfið verið metnaðurfullt og mikil samstaða um að hátíðin sé vegleg og fái að þróast, dafna og vaxa. Í dag er BRAS einn af stærstu viðburðunum sem haldnir eru í fjórðungnum sem gleður mjög enda er öflugt menningarstarf ein af grunnstoðum samfélagsins.

Hátíðin er samstarfsverkefni sveitarélaganna, menningarmiðstöðva á Austurlandi, List fyrir alla og Austurbrúar.

Styrktaraðilar

Aðalstyrktaraðilar hátíðarinnar eru Barnamenningarsjóður, Sóknaráætlun Austurlands og Alcoa Fjarðarál

Merki BRAS

Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Verkefnisstjóri BRAS
Netfang: [email protected]