Isavia óskar eftir starfsmanni á verkstæði Egilsstaðaflugvallar
Isavia óskar eftir starfsmanni á verkstæði
Egilsstaðaflugvallar. Helstu verkefni eru
viðgerðir og viðhald á vörubílum og vinnuvélum,
björgunar- og slökkviþjónusta, snjóruðningur,
hálkuvarnir og flugvernd.
Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun
og þolpróf. Um dagvinnu er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Jörundur Ragnarsson,
[email protected]
Starfsstöð: Egilsstaðir
Hæfniskröfur
• Sveinspróf í vél- eða bifvélavirkjun er skilyrði
• Meirapróf og vinnuvélaréttindi
er skilyrði
• Reynsla í slökkvistörfum og
snjóruðningi er kostur
• Reynsla af viðgerðum vinnuvéla
og vörubíla
• Góð tölvu- og ensku kunnátta
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og
skila inn umsókn vegna bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint
sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að
vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska
flugstjórnarsvæðið. Isavia ber Jafnlaunamerkið með stolti enda er það
staðföst trú okkar að launaákvarðanir skuli ávallt byggja á faglegum og
málefnalegum rökum.
UMSÓKNARFRESTUR:
12. JANÚAR 2020
UMSÓKNIR:
ISAVIA.IS/ATVINNA