Atvinna Alcoa Fjarðaál

Alcoa Fjarðaál er stærsta iðnfyrirtæki landsins og við leitum nú að góðu fólki í framleiðsluteymin okkar í álverinu á Reyðarfirði. Teymisfélagar skipta með sér verkum og sjá um daglega framleiðslu Fjarðaáls á þrískiptum átta tíma vöktum.

Hvers vegna að vinna með okkur?
Við erum með vaktakerfi sem gefur gíðar tekjur og fimm daga frí á milli vaktalotna.
Við höfum fríðindi á borð við akstur til og frá vinnu, mötuneyti, heilsugæslu og velferðarþjónustu.
Við stöndum vörð um jafnrétti og gerðum með okkur sáttmála um góða vinnustaðarmenningu.
Við trúum því að samhent teymi ólíkra einstaklinga skili bestum árangri.
Við gerum strangar kröfur til okkar í umhverfis-, heilbrigðis og öryggismálum.
Við fáum tækifæri til starfsþróunar í gegnum þjálfun, fræðslu og fjölbreyttra starfsreynslu.
Við búum í nálægð við náttúruna í fjölskylduvænu samfélagi á Austurlandi.

Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur í álverinu á Reyðarfirði þá hvetjum við þig til að kynna þér málið nánar. Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 470 7700.

Hægt er að sækja um framleiðslustörf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, tala íslensku, vera með gild ökuréttindi og hreint sakavottorð. Umsóknir eru trúnaðarmál og er þeim öllum svarað.

Við hvetjum konur sérstaklega til að sækja um störfin. Umsóknarfrestur er til og með 30 ágúst 2019.