50% starf hjá Starfsendurhæfingu Austurlands.

Það er okkur mikil ánægja að óska eftir starfsmanni í 50% starf
hjá Starfsendurhæfingu Austurlands.
Spennandi tækifæri fyrir áhugasama sem vilja leggja sitt af mörkum og styðja fólk á vinnumarkað, móta og hafa áhrif á þróun starfsendurhæfingar á Austurlandi.

Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og metnað í starfi. Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði, jákvæðu
viðhorfi, sjálfstæði í vinnubrögðum auk góðra samskiptahæfileika s.s. lipurð og áreiðanleika í samskiptum skilyrði.
Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-og félagsvísinda sem nýtist í starfi.
Reynsla og þekking á sviði starfsendurhæfingar er æskileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun, skipulag og umsjón sjálfseflandi námskeiða og úrræða.
Ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgd við þátttakendur í endurhæfingu.
Skráning, greinagerðir, gerð endurhæfingaráætlana, faglegir fundir og samstarf við stofnanir og atvinnurekendur.
Markaðssetning og kynning starfseminnar í samfélaginu.
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og samtaka atvinnulífsins.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2019.
Æskilegt að starfsmaður geti hafið störf 1. október nk. eða eftir samkomulagi
Áhugasamir sendi inn kynningarbréf ásamt ferilskrá á netfangið [email protected]
Frekari upplýsingar veitir: Linda E.Pehrsson í síma 852 5232 & 471 2938
eða í ofangreindu netfangi.
Eins er velkomið að kíkja í heimsókn.

Secret Link