Egilsstaðir – Bréfberi óskast í 80% hlutastarf

Pósturinn leitar að kraftmiklum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstakling í útburð.
Hressandi útivera og við leitum eftir einstaklingi í 80% starf. Vinnutíminn er frá klukkan 09:00 til 15:30. Dreifing fer fram á Egilsstöðum.
Umsóknarfrestur er opinn þar sem mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum á umsóknarvef Póstsins, www.postur.is.
Pósturinn er með Jafnlaunavottun og hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir: Stefanía Pálsdóttir í netfangi [email protected]

Secret Link