Ráðgjafar á Austurlandi

Við leitum að metnaðarfullum og söludrifnum aðila í útibú okkar á
Egilsstöðum og Reyðarfirði til að sinna þjónustu og sölu til viðskiptavina.
Um er að ræða fjölbreytt starf í skemmtilegu starfsumhverfi.

Við leitum að einstaklingum með
› menntun sem nýtist við ráðgjöf og þjónustu
› reynslu af ráðgjafar- og söluverkefnum
› mikla færni í mannlegum samskiptum og afbragðs söluhæfileika
› framúrskarandi þjónustulund og jákvætt hugarfar
› mikið frumkvæði og metnað til að ná árangri

Starfið felur í sér
› ráðgjöf og þjónustu vegna trygginga
› sölu- og upplýsingagjöf til núverandi og nýrra viðskiptavina
› greiningu á þörfum viðskiptavina og þátttöku í fjölbreyttum þjónustuverkefnum

Sjóvá starfrækir útibú á Egilsstöðum og Reyðarfirði ásamt umboðum á Vopnafirði, Neskaupstað, Djúpavogi og Höfn.

Markmið okkar er að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf á sviði vátrygginga.
Nánari upplýsingar veitir Arnar Jón Óskarsson útibússtjóri, [email protected] og 440 2405.

Umsóknarfrestur er til og með 19. júní.
Sótt er um á www.sjova.is/stafsumsoknir.