Umsjónarkennari á miðstigi – Egilsstaðaskóli

Egilsstaðaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á miðstigi.

Um er að ræða 100% starf frá 1. ágúst 2026.

Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Í Egilsstaðaskóla eru rúmlega 400 nemendur. Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður og endurspeglast þau í daglegu starfi, samskiptum og skólabrag.

Í skólanum er áhersla á vellíðan, farsæld og árangur allra nemenda og starfsfólks. Unnið er að innleiðingu hugmyndafræði Heillaspora og Leiðsagnarnáms og gæða kennslu. Unnið er eftir hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar.

Áhersla er á jákvæð samskipti, virka þátttöku nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Undanfarið hefur skólinn unnið að verkefninu „Sterkir hópar“ þar sem markmiðið er að styrkja jákvæðan anda í nemendahópunum og efla þannig forvarnir gegn einelti, samskiptavanda og meiðandi samskiptum.

Í skólanum er teymiskennsla og teymisvinna og rík samvinnumenning meðal starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
  • Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla.
  • Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn).
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla æskileg.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.