Stuðningsfulltrúi óskast í Seyðisfjarðarskóla.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með börnum í skóla- og frístundastarfi. Um er að ræða 100 % starf frá 1. ágúst næstkomandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita nemendum stuðning í daglegum athöfnum og námi.
  • Að vera kennurum til aðstoðar með nemendur sem þurfa sértæka aðstoð.
  • Að auka færni og sjálfstæði nemenda, námslega og í daglegum athöfnum í samstarfi við foreldra og kennara.
  • Að sinna gæslu nemenda í matsal og á skólalóð.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipuleg vinnubrögð.
  • Áhugi og metnaður að vinna með börnum.
  • Fagmennska í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta.