Staða stuðningsfulltrúa við Eskifjarðarskóla
Um er að ræða u.þ.b. 80% starf fyrir skólaárið 2026-2027, ráðið er í starfið frá 1. ágúst n.k.
Í Eskifjarðarskóla eru 140 nemendur í 1. til 10. bekk, áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks. Í skólanum eru einnig til húsa tónlistarskólinn og bókasafn bæjarins.
Einkunnarorð skólans eru: Áræði, færni, virðing og þekking.
Lögð er áhersla á skemmtilegt og skapandi skólastarf, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu grunnesk.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita nemendum stuðning í daglegum athöfnum og námi.
- Að vera kennurum til aðstoðar með nemendur sem þurfa sértæka aðstoð.
- Að starfa í stuðnings- og sérkennsluteymi skólans.
- Að auka færni og sjálfstæði nemenda, námslega og í daglegum athöfnum í samstarfi við foreldra og kennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Fagmennska í vinnubrögðum.
- Reynsla og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.