Umsjónaraðili Frístundar í Egilsstaðaskóla

Egilsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónaraðila Frístundar til eins árs, sem er lengd viðvera fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Starfið er 50% hlutastarf en möguleiki á hærra starfshlutfalli í öðrum verkefnum. Ráðið er í starfið frá 17. ágúst 2026 – 11. júní 2027.

Umsjónaraðili Frístundar skipuleggur starf Frístundar í samráði við skólastjóra og forstöðumann frístundastarfs í Múlaþingi, og sér til þess að framfylgja því skipulagi. Meðal verkefna Frístundar eru félagslegur stuðningur og þjálfun nemenda. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðaða hugsun og frumkvæði í daglegum verkefnum.

Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Vinnutími er alla jafna frá kl. 12.25 – 16.00 alla virka daga.

Í Egilsstaðaskóla eru rúmlega 400 nemendur. Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður og endurspeglast þau í daglegu starfi, samskiptum og skólabrag.

Í skólanum er áhersla á vellíðan, farsæld og árangur allra nemenda og starfsfólks. Unnið er að innleiðingu hugmyndafræði Heillaspora og Leiðsagnarnáms og gæða kennslu. Unnið er eftir hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar.

Áhersla er á jákvæð samskipti, virka þátttöku nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Undanfarið hefur skólinn unnið að verkefninu „Sterkir hópar“ þar sem markmiðið er að styrkja jákvæðan anda í nemendahópunum og efla þannig forvarnir gegn einelti, samskiptavanda og meiðandi samskiptum.

Í skólanum er teymiskennsla og teymisvinna og rík samvinnumenning meðal starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um skráningar nemenda í Frístund.
  • Skipuleggja starf Frístundar og sjá til þess að því sé fylgt eftir.
  • Tryggja að nemendur komist í skipulagðar tómstundir á meðan dvalartíma stendur s.s. í tónlistarnám og/eða íþróttir.
  • Gefa nemendum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
  • Gæta fyllsta öryggis nemenda og forðast þær aðstæður sem geta reynst hættulegar.
  • Samskipti við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk grunnskóla er varða starfsemi Frístundar.
  • Annast innkaup á leikföngum og öðrum munum í frístundastarf.
  • Önnur verkefni í samráði við skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um stúdentspróf.
  • Menntun á sviði uppeldis og/eða tómstundarfræða eða önnur menntun sem nýtist í starfi mikill kostur.
  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi.
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Lausnamiðun og geta brugðist hratt og vel við óvæntum atburðum sem upp koma.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.