Svaedisskipulag Austurlands

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu ?

Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Saman stuðlum við að bættri vellíðan og öryggi á vinnumarkaði.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Egilsstöðum. Starfið felst í að sinna vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum að mestu á Austurlandi en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum geta verið lengri ferðir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd vettvangsathugana og stafrænna samskipta
  • Skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum
  • Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Þátttaka í umbótastarfi og verkefnum sem tengjast starfinu
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, auk frumkvæðis til að fylgja málum eftir
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Lausnarmiðuð nálgun og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni með jákvæðu hugarfari
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakarvottorð
  • Ökuréttindi