Aðstoðarskólastjóri leikskóladeildar
Seyðisfjarðarskóli auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðstoðarskólastjóra yfir leikskóladeild skólans. Um framtíðarstarf er að ræða frá 1. ágúst næstkomandi.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Seyðisfjarðarskóla.
Seyðisfjarðarskóli er samrekinn leik-, grunn- og listaskóli staðsettur á þremur nálægum starfsstöðvum í miðbæ Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Leikskólinn er tveggja deilda leikskóli með um 30 nemendur. Unnið er með uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar í öllum deildum Seyðisfjarðarskóla. Einkunnarorð skólans eru: Í hverju barni býr fjársjóður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Er aðstoðarmaður skólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
- Vinnur ásamt skólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við skólastjóra.
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er skólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
- Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun og daglegt starf leikskólans sem yfirmaður felur honum.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna leikskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af stjórnendastarfi í leikskóla er æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að vinna með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta