Kennarar óskast til starfa

Fellaskóli í Múlaþingi auglýsir eftir kennurum fyrir skólaárið 2026/2027 með möguleika á framtíðarstarfi. Starfshlutfall getur verið samkomulag. Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026.

  • Kennara á unglingastig
  • Kennara á miðstig
  • List- og verkgreinakennara
  • Íþróttakennara

Fellaskóli er notalegur lítill skóli með um 80 nemendur. Við störfum samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Uppeldisstefna skólans er jákvæður agi. Við leggjum áherslu á útinám og höfum verið að þróa þá kennslu á öllum skólastigum undanfarin ár þar sem um samþættingu námsgreina og teymisvinnu er að ræða.

Næsti yfirmaður er skólastjóri Fellaskóla

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samráði i við skólastjórnendur og aðra kennara.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
  • Stuðla að vegferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Góð hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Góð skipulagshæfni, jákvæðni, frumkvæði og reynsla.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Vilji til að starfa í teymum.
  • Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi

Heilsueflingarstyrkur