bílstjóri óskast
Pósturinn á Egilsstöðum leitar að kraftmiklum og ábyrgðarfullum einstaklingi í starf bílstjóra. Viðkomandi sér um dreifingu pósts í þéttbýli og dreifbýli á Vopnafirði ásamt áfyllingu póstboxa.
Unnið er útfrá Egilsstöðum/Vopnafirði og vinnutími er alla virka daga kl. 08:00-16:00.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf er skilyrði
- Íslensku- eða enskukunnátta
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
- Sterk ábyrgðartilfinning
- Almenn tölvukunnátta