Fulltrúi sveitarstjóra á Djúpavogi
Sveitarfélagið Múlaþing leitar að einstaklingi til starfa við ýmis verkefni sveitarfélagsins á stjórnsýslusviði og er starfsstöð viðkomandi á skrifstofu Múlaþings á Djúpavogi. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert 100% framtíðarstarf í lifandi umhverfi.
Næsti yfirmaður er sveitarstjóri og er ráðið í starfið frá 1.júní nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með verkefnum sveitarfélagsins á staðnum í samráði við sveitarstjóra og yfirmenn viðkomandi sviða.
- Undirbýr og situr fundi með heimastjórn Djúpavogs.
- Sér um ritun fundargerða heimastjórnar og sér um að afgreiðslur heimastjórnar komist í réttan farveg.
- Samráð og samstarf um verkefni við annað starfsfólk á stjórnsýslusviði.
- Veita íbúum og öðrum sem til skrifstofu Múlaþings á Djúpavogi leita faglega og góða þjónustu og koma erindum í réttan farveg.
- Starfsmaður sér um innkaup á daglegum vörum fyrir skrifstofuna á Djúpavogi og hefur umsjón með daglegum rekstri á búnaði skrifstofunnar á Djúpavogi.
- Tengiliður sveitarfélagsins vegna Cittaslow verkefnisins.
- Ýmis verkefni tengd höfnum Múlaþings.
- Önnur verkefni sem sveitarstjóri felur viðkomandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á fyrsta stigi (BS/BA) sem nýtist í starfi er skilyrði, framhaldsháskólamenntun kostur.
- Gerð er krafa um frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Gerð er krafa um þekkingu á sveitarstjórnarmálum og/eða opinberri stjórnsýslu.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
- Gerð er krafa um búsetu í gamla Djúpavogshreppi.
- Góð tölvukunnátta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og gott vald á að skrifa texta.
- Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.