Leikskólakennari við Dalborg, Eskifjörður
Dalborg er 50 nemenda skóli sem skiptist á 4 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Dalborg vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Um er að ræða tímabundna 100% stöðu með möguleika á framtíðarstarfi, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Allar frekari upplýsingar veitir Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar.
- Situr starfsmannafundi, deildarfundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varða starfsemi leikskólans.
- Samstarf við foreldra/forráðamenn barna á leikskólanum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
- Reynsla af starfi með börnum æskileg
- Ábyrgð og stundvísi
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
Greitt er 50.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar.