Félagsráðgjafi eða sérfræðingur í barna- og fjölskylduvernd
Laus er til umsóknar 100% staða ráðgjafa við barna- og fjölskylduvernd Múlaþings. Starfið er laust nú þegar.
Starfskraftur sinnir meðal annars barnaverndarmálum, félagslegri ráðgjöf, samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, samvinnu eftir skilnað sem og öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.
Næsti yfirmaður er sviðstjóri velferðar.
Á fjölskyldusviði Múlaþings starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga og lögð er áhersla á teymisvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnsla barna- og fjölskylduverndarmála.
- Ráðgjöf við foreldra og börn.
- Ráðgjöf við aðra sem að málum barna koma.
- Málstjóri barnaverndarmála.
- Málstjóri í samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
- Félagsleg ráðgjöf.
- Samstarf við aðrar stofnanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða menntun á uppeldis-, heilbrigðis- eða félagsvísindasviði.
- Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd er kostur.
- Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Góð færni í mannlegum samskiptum, samstarfi og teymisvinnu.
- Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á OneSystems er kostur.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Hreint sakavottorð.
- Bílpróf.
Fríðindi í starfi
Heilsueflingarstyrkur