Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði

ilt þú taka þátt í verkefnum sem skipta máli fyrir samfélagið? Vegagerðin hefur það hlutverk að byggja upp, viðhalda og reka samgöngukerfi landsins. Við leitum nú að deildarstjóra umsjónardeildar á Austursvæði til að leiða fjölbreytt og krefjandi verkefni við stýringu nýframkvæmda og viðhalds á svæðinu. Svæðismiðstöð er á Reyðarfirði en mögulegt verður að sinna starfi að hluta frá þjónustustöð í Fellabæ.

Umsjónardeildir svæða hafa umsjón og eftirlit með þeim framkvæmdum sem svæðum eru falin. Í samráði við mannvirkjasvið annast umsjónardeild viðhald bundinna slitlaga, styrkingar og endurbætur ásamt efnisvinnslu á svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri leiðir starfsemi umsjónardeildar og sýnir gott fordæmi í öryggismálum. Deildarstjóri hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framgang þeirra og kostnað.

  • Yfirumsjón með nýframkvæmdum og öðrum framkvæmdum sem svæðinu eru falin þannig að farið sé eftir útboðslýsingum, stöðlum og verklýsingum
  • Umsjón með umferðaröryggisaðgerðum
  • Gerð viðhaldsáætlana og umsjón með slitlagabanka
  • Yfirumsjón með viðhaldi brúa og varnargarða, áætlanagerð og framkvæmd
  • Umsjón með efnisvinnslu ásamt efniskaupum á svæðinu
  • Mælingar tengdar framkvæmdum, s.s. útsetningar, framkvæmda- og úttektarmælingar og kostnaðareftirlit
  • Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þau verkefni sem deildinni eru falin
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk- eða tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ámóta störfum er kostur
  • Þekking á landsvæði er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til að leiða teymi
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
  • Góð öryggisvitund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Almenn ökuréttindi
Secret Link