Starfsmaður í heimaþjónustu
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í heimaþjónustu í Fjarðabyggð. Að öllu jafna er inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega, staðsetningin er því breytileg.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Félagslegt innlit og stuðningur
- Aðstoð við heimilishald
- Veita persónulega aðstoð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
- Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
- Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota