Matráður óskast í Brúarásskóla
Brúarásskóli óskar eftir matráði í 90-100% starfshlutfall frá og með 1. júlí 2025. Matráður skólans undirbýr og matreiðir hollar og fjölbreyttar máltíðir fyrir nemendur og starfsfólk í leik- og grunnskóladeild Brúarásskóla.
Leitað er að metnaðarfullum, samviskusömum og jákvæðum einstaklingi sem hefur færni, reynslu og menntun sem nýtist í starfi.
Næsti yfirmaður er skólastjóri Brúarásskóla.
Húsnæði á staðnum býðst til leigu fyrir réttan einstakling.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útbýr hádegisverð og miðdegishressingu fyrir nemendur og starfsfólk skólans.
- Hefur umsjón með þrifum á matsal og í mötuneyti.
- Sér um innkaup á matvörum fyrir mötuneytið.
- Skipuleggur matseðla, allt að mánuð fram í tímann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði matreiðslu kostur
- Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsi æskileg
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af starfi með börnum er kostur.
- Hreint sakavottorð