Skipulagsfulltrúi Múlaþings
Múlaþing auglýsir eftir skipulagsfulltrúa á umhverfis- og framkvæmdasvið.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert 100% framtíðarstarf í lifandi umhverfi.
Múlaþing er að vinna við nýtt aðalskipulag sem er mjög áhugaverð og skapandi vinna. Á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings starfar öflugur hópur sem samanstendur af vel menntuðum og kraftmiklum einstaklingum.
Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.
Starfskraftur er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum Múlaþings; Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu
- Útgáfa framkvæmdarleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingaerindi
- Umsjón með vinnu við gerð aðalskipulags Múlaþings
- Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingaleyfa
- Umsjón með lóðamálum og gerð lóðaleigusamninga
- Auglýsir skipulagsáætlanir lögum samkvæmt
- Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála
- Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila
- Önnur verkefni sem viðkomanda er falið af framkvæmda- og umhverfismálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvæmt 7. grein skipulagslaga nr. 123/2010 s.s. skipulagsfræðingur, arkitekt, byggingarfræðingur, landslagsarkitekt, tæknifræðingur eða verkfræðingur
- Amk. 2. ára starfsreynsla eða sérhæft nám í skipulagsmálum er skilyrði
- Þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis
- Góð almenn tölvukunnátta
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta í máli og ritun
Fríðindi í starfi
Heilsueflingarstyrkur