Framleiðslusérfræðingur / Production Specialist
Alcoa Fjarðaál leitar að áhugasömum framleiðslusérfræðingum til að taka að sér lykilhlutverk í tækniteymi kerskálaþjónustu sem annast rekstur skautsmiðju, kersmiðju og hreinsivirkja fyrirtækisins. Starfið felur í sér ábyrgð á að efla framleiðsluferli með því að bæta búnað og verklag. Megináhersla tækniteymisins er að hámarka framleiðni og tryggja á sama tíma örugga, vinnuvistfræðilega og umhverfismeðvitaða nálgun. Starfið mun einnig fela í sér virka þátttöku í verkefnum sem miða að því að betrumbæta ferla og stuðla að þróun háþróaðra framleiðsluaðferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bestun framleiðsluferla
- Þróun vél- og hugbúnaðar
- Þróun gagnadrifinna og sjálfvirkra lausna
- Lágmörkun neikvæðra umhverfisáhrifa
- Tryggja stöðugar umbætur
- Innleiðing og eftirfylgni breytinga
- Styðja og þjálfa aðra starfsmenn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starf svo sem verkfræði eða tæknifræði
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Gott vald á íslensku og ensku
- Reynsla af gagnagreiningu er kostur
- Reynsla af skautsmiðju eða hreinsibúnaði er kostur
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Íþrótta og meðferðarstyrkir
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum